dada
Jan 2013

Older News

Enn að læra á þessa nýju tækni og fann þetta snilldar blogforrit með allskonar fídusum. Hægt að skrifa comments og hafa sér link á hverja frétt osfrv. Winking Mjög merkileg uppgötvun fyrir ekki meiri gúrú í þessum brasa Winking Og því er hægt að skoða eldri fréttir hér lesa meira/read more...

Janúarlok

Jæja þá er komið að því að setja inn reglulegar fréttir. Winking Fyrsta mót KB mótaraðarinnar fer að hefjast, eða 2.febrúar og virðist stemningin fyrir mótinu bara fara uppávið frá ári til árs Winking Mikið framundan hjá okkur hestamönnum, íslandsmót, fjórðungsmót og svo heimsmeistaramót... Alltaf eitthvað um að vera sem betur fer.

securedownload-9 Mynd: Svikahrappur f.Borgarnesi, eig: Gunnar Hlíðdal & Finnur Kristjánsson.

Talsvert er um ung hross í tamningu hjá okkur núna eins og vanalega og úr öllum áttum, og eitthvað af eldri hrossum sem stefnt er með í keppni og/eða kynbótadóm. Hér á myndinni er Svikahrappur f.Borgarnesi en hann og albróðir hans eru hjá okkur og gaman að sjá hversu ólíkir þeir eru á allan hátt. Þá bæði hvað varðar gangupplag og geðslag.
lesa meira/read more...